Velkomin á heimasíðu Púkans!

Púkinn er barnamenningarhátíð sem haldin er um alla Vestfirði. Hátíðin var haldin í fyrsta sinn í september 2023 og vonumst við til að hún hafi aðeins markað upphafið að blómlegum árvissum menningarviðburði. Púkinn er frábær vettvangur fyrir vestfirsk börn að kynnast listum og menningu á fjölbreyttan hátt og einnig er hann kjörinn til allra handa samstarfs innan svæðisins svo efla megi svæðisvitund meðal vestfirskra barna. Púkinn er hugsaður sem vettvangur fyrir menningu með börnum, menningu fyrir börn og menningu sem börn skapa sjálf. Það er Vestfjarðastofa sem leiðir verkefnið í samstarfi við alla grunnskóla og menningarstofnanir á svæðinu. Hátíðin er styrkt af Barnamenningarsjóði. 

Nafnið Púkinn er vel við hæfi því á mörgum stöðum innan fjórðungsins hafa börn gjarnan verið kölluð púkar, þá ekki í neinni niðrandi merkingu heldur einvörðungu sem annað heiti yfir börn. Nafnið varð hlutskarpast í lýðræðislegri nafnakosningu sem fram fór meðal allra grunnskólabarna á svæðinu.

Við endurmat að lokinni hinni fyrstu hátíð kom fram að betur færi á að halda hátíðina að vori og verður hún því haldin á ný dagana 15.-26. apríl 2024.

#pukinn #púkinn #pukinnhatid #púkinnhátíð

Púkinn Logo